Velkomin(n) á vef Akureyrarbæjar

„Akureyri er fallegur bær og það er mannlífið á Akureyri líka. Íbúarnir bera það með sér að þeim líður vel. Ekki er streitunni fyrir að fara og fólk kemst auðveldlega leiðar sinnar. Hér er gott að una í leik og starfi." - Hermann Jón Tómasson


Menningarhús

Utlit-mynd-1

Samningur um hönnun menningarhúss og tónlistarskóla var undirritaður 2. júní 2005.

Í samkeppninni var gert ráð fyrir að tónlistarskóli mundi rísa síðar í sérstöku húsi tengdu menningarhúsinu. Á frumhönnunarstigi var bætt við hæð ofan á menningarhúsið þar sem starfsemi tónlistarskólans mun að mestu verða. Þessi niðurstaða þótti hentug bæði hvað varðar nýtingu á húsinu og einnig með tilliti til byggingakostnaðar.

Tilboð í fyrsta útboð vegna framkvæmda við menningarhús og tónlistarskóla voru opnuð 4. nóvember 2005. Samið var við Árna Helgason ehf. verktaka um framkvæmdina sem felur í sér fergja svæði (til að láta jarðveginn síga) og reka niður stálþil. Byggingin rís nú óðum úr jörðu.

Áætluð verklok fyrir menningarhús og tónlistarskóla ásamt lóð og umhverfi er vor 2009.

Opnaður hefur verið verkefnavefur fyrir hönnun menningarhúss og tónlistarskóla á Akureyri. Hann er ætlaður þeim sem að verkinu koma og þarf sérstakt lykilorð til að fara inn á vefinn. Lykilorð fæst hjá Fasteignum Akureyrarbæjar.

Gögn fyrir útboð 3-II má nálgast á verkefnavef sem er aðgangsstýrður, til að fá aðgang vinsamlegast sendið tölvupóst á ghs@vgkhonnun.is eða hringið í síma 464 7502.





Útlit síðu:

haus_menningarhus2

Þetta vefsvæði byggir á Eplica