Þjónusta

Akureyri leggur áherslu á að veita einstaklingum og fjölskyldum fyrirmyndar búsetuaðstæður og faglega þjónustu. Sérstök áhersla er lögð á góða leik- og grunnskóla, fjölbreytta íþrótta- og tómstundastarfsemi og að á Akureyri þrífist frjótt og öflugt lista- og menningarlíf.

Útivist og íþróttir

Útivist og íþróttir

Allir þekkja Sundlaug Akureyrar en heimsóknir í hana eru um 300.000 árlega. Á sundlaugarsvæðinu er m.a. 25 metra keppnislaug ásamt fjórum heitum pottum, eimbaði, rennibrautum, busllaugum, innilaug og útilaug.

Við sundlaugina er fjölskyldugarður með vinsælum leiktækjum. Á Akureyri er nyrsti 18 holu golfvöllur í heimi, Jaðarsvöllur. Þar er árlega haldið golfmót sem er einstakt í sinni röð og nefnist Arctic Open. Sérstaða þess felst í því að spilað er í hinni björtu, íslensku sumarnótt (www.arcticopen.is).

Skíðaland Akureyringa er í Hlíðarfjalli, 5 km fyrir ofan bæinn og er það að mörgu leyti einstakt í sinni röð. Það er lægst í um 500 m hæð en nær upp í um 1000 m yfir sjávarmál og þar er því jafnan nægur snjór yfir vetrarmánuðina. Í Hlíðarfjalli eru árlega haldin alþjóðleg skíðamót. Aðstaða til skautaiðkunar er einnig eins og best verður á kosið í glæsilegri skautahöll.

Nokkrar sérvaldar gönguleiðir á Akureyri (PDF-skjal, 650 k)

Niðurgreiðsla þátttökugjalda barna og unglinga í íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi á Akureyri

Listi yfir þá aðila sem hafa rétt til að taka við inneignarbréfi frá ÍTA





Útlit síðu:

Haus_midbaer

Þetta vefsvæði byggir á Eplica