Karlakór Akureyrar - Geysir
Á Akureyri störfuðu lengi bæði Karlakór Akureyrar (stofnaður 1929) og Karlakórinn Geysir (stofnaður 1922). Kórarnir voru fjandvinir; báðir höfðu sömu markmið en kepptust um félaga og athygli. Þá var upphefð að vera í karlakór og ákveðinn ljómi sveipar gamla kóra og kórfélaga. Hér á árum áður sáu kórarnir jafnvel um að skipuleggja hátíðahöld í bænum þann 17. júní. Kepptu þeir þá í fótbolta, boðhlaupi og ýmsu öðru. Kring um 1980 fór veldi söngmanna dvínandi; kórarnir við það að verða ófærir um að syngja sökum fækkunar.
Árið 1990 er ákveðið að sameina kórana og þann 11. október það ár verður til skilgetið afkvæmi þessara tveggja gömlu merkiskóra: Karlakór Akureyrar – Geysir. Fyrsti formaður hins nýja kórs var kjörinn Ingvi Rafn Jóhannsson og söngstjóri Roar Kvam. Í dag er Snorri Guðvarðsson formaður. Michael Jón Clarke stýrir söngnum og Helena Bjarnadóttir er píanisti KAG. Æfingar eru á mánudögum og fimmtudögum frá 20 til 22 frá september til maí.

Kórinn hefur gefið út tvo geisladiska. "Vorkliður" kom út árið 1997 og syngur Sigrún Hjálmtýsdóttir þar með kórnum. Undirleik annaðist Richard Simm. “Á Ljóðsins Vængjum” leit svo dagsins ljós sumarið 2005. Á honum eru lög við ljóð Davíðs Stefánssonar. Aladár Rácz leikur undir. Margir einsöngvarar koma þar við sögu.
KAG hefur einnig bryddað upp á nýjungum undanfarin ár. Sett var upp svokallað “Bítla-prógram” eitt árið, “Allra meina bót” annað ár, og síðar “Hæ Hoppsasí” sem var samsafn írskra laga. Núna er verið að vinna í perlum frá Vilhjálmi Vilhjálmssyni.
Sumarið 2003 fór kórinn í hálfs mánaðar ferð til Ítalíu. Þar var sungið í Feneyjum, Verona, Flórens og Péturskirkjunni í Róm. Árið 2007 verður farið til Eistlands og Rússlands.
Félagsheimili kórsins heitir Lón og stendur við Hrísalund. Netfangið er geysir@isl.is en netfangi@simnet.is hjá formanni. Hægt er að nálgast allar nánari upplýsingar um kórinn á heimasíðu sambands norðlenskra karlakóra: www.sikk.is/hekla.
| Þjónustuflokkar fyrirtækis |
Tengiliður fyrirtækis |
| Tónlist |
|