Þjónusta

Akureyri leggur áherslu á að veita einstaklingum og fjölskyldum fyrirmyndar búsetuaðstæður og faglega þjónustu. Sérstök áhersla er lögð á góða leik- og grunnskóla, fjölbreytta íþrótta- og tómstundastarfsemi og að á Akureyri þrífist frjótt og öflugt lista- og menningarlíf.

Jazzklúbbur Akureyrar

Jazzklúbbur Akureyrar var stofnaður 13. mars 1983. Fyrsti formaður hans var Eiríkur Rósberg Árelíusson og starfaði klúbburinn undir hans forustu til 1990.

Frá upphafi gekkst klúbburinn fyrir djasstónleikum af ýmsu tagi og fékk hingað þekkta djassleikara og hljómsveitir, má þar nefna Tríó Eddie Harris, Dirty Dozen Brass Band, Jazzkvartett George Adams, Don Pullen, St. Louis Kings, 10 manna hljómsveit.
Auk þess gekkst klúbburinn fyrir kennslu og námskeiðum í samstarfi við Tónlistarskólann á Akureyri.

Norski gítarleikarinn Paul Weeden hélt mörg námskeið á þessum tíma sem hafði þau áhrif að Edward Fredriksen var ráðinn að Tónlistarskólanum á Akureyri m.a til að kenna djass og stofnaði hann og stjórnaði Stórsveit Tónlistarskólans á Akureyri sem var mikil lyftistöng í djasslífi á Akureyri um árabil.

Starfsemi klúbbsins lá niðri frá 1990 til 1995 en á félagsfundi þ. 19.11 1995 var kosin starfsnefnd til að taka upp þráðinn á ný, en í henni sátu: Erla Stefánsd., Jón Hlöðver Áskelsson, Ólafur Héðinsson og Ragnheiður Ólafsd. Eitt af stærstu verkefnum klúbbsins þá og síðan var skipulagning djasstónleika á Listasumri, en þá eru haldnir vikulegir tónleikar á Heitum fimmtudögum.

Á fundi þ. 8.mars 1997 var kosin stjórn og var Jón Rafnsson formaður hennar. Á aðalfundi félagsins 26. mars 2000 var núverandi stjórn kosin en hana skipa. Jón Hlöðver Áskelsson, formaður, Hjalti Jón Sveinsson, ritari, Ólafur Héðinsson gjaldkeri og meðstjórnendur eru þau. Oktavía Jóhannesdóttir og Stefán Ingólfsson

Þjónustuflokkar fyrirtækis Tengiliður fyrirtækis
Tónlist






Útlit síðu:

Haus_kirkja3

Þetta vefsvæði byggir á Eplica